Löggild leigumiðlun og fasteignaslaLöggild leigumiðlunSamkvæmt húsaleigulögum, nr. 36 22. apríl 1994 mega þeir einir reka leigumiðlun um húsnæði, hvort sem er íbúðar- eða atvinnuhúsnæði, sem til þess hafa hlotið sérstakt leyfi velferðarráðherra. Hlutverk leigumiðlara er að hafa milligöngu um leigu á íbúðar- og atvinnuhúsnæði á milli leigusala og leigjanda, það er að koma á leigusamningi, annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði. Fasteignasölum er bannað að stunda leigumiðlun nema þeir hafi leigumiðlararéttindi. Lögmönnum er bannað að stunda leigumiðlun nema þeir hafi leigumiðlararéttindi. Leigumiðlari er tryggingaskyldur samkvæmt reglugerð fyrir greiðslu kostnaðar og tjóns sem aðilar leigusamnings kunna að verða fyrir af hans völdum. Ólafur Jóhannsson, Helgi Bjarnason, Magnús Kristinnsson, Helgi Már Karlsson og Sigurður J. Sigurðsson eru allir með leyfi frá velferðaráðherra til að stunda leigumiðlun. Lög um leigumiðlun er að finna á vef Alþingis á slóðinni: http://www.althingi.is/lagas/139b/1994036.html Helgi, Ólafur og Helgi Már eru í Félagi löggiltra leigumiðlara. FaseignasalaSamkvæmt lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa, nr. 99 9. júní 2004 mega þeir einir reka fasteignasölu sem eru með löggildingu sýslumanns. Helgi Bjarnason, Ólafur Jóhannsson, Magnús Kristinsson, Helgi Már Karslsson og Sigurður J. Sigurðsson eru allir með leyfi sýslumanns til að stunda fasteignasölu, eru allir í í félagi fasteignasala og eru með starfsábyrgðartryggingar. Lög um fasteignakaup, nr. 40 18. apríl 2002 eru á vef Alþingis á slóðinni http://www.althingi.is/lagas/139b/2002040.html Lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19 6. apríl 1966 eru á slóðinni http://www.althingi.is/lagas/139b/1966019.html Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa nr. 99 9. júní 2004 eru á vef Alþingis á slóðinni http://www.althingi.is/lagas/139b/2004099.html |
.


