NAI Reykjavík var stofnuð í Reykjavík í febrúar 2002. Upphaflega var nafn fasteignasölunnar Austurbær fasteignasala, en nafni fyrirtækisins var breytt í ágúst 2006.
Fyrirtækið er í einkaeigu Magnúsar Kristinssonar og Þrastar Þórhallssonar, og er nýlega orðinni hluti af NAI Global sem er alþjóðleg keðja fasteignasala sem sérhæfir sig í sölu atvinnuhúsnæðis (commercial real estate).
NAI Reykjavík sérhæfir sig í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi. Einnig getur NAI Reykjavík haft milligöngu um sölu, leigu eða ráðgjöf vegna fasteignakaupa Íslendinga erlendis.
Magnús Kristinsson lauk verkfræðiprófi frá HÍ árið 1994 og starfaði eftir það við sölu og markaðsstörf hjá EJS og Skýrr allt til 1. október 2003. Í nóvember 2003 lauk Magnús prófi til réttinda leigumiðlunar. Í júní 2006 lauk Magnús prófi löggilts fasteignasala.
Þröstur Þórhallsson starfaði um skeið hjá Sýslumannsembætti Reykjavíkur og hefur starfað við sölu fasteigna síðan 1996. Haustið 2001 lauk Þröstur prófi löggilts fasteignasala.